Þetta er bara basic...
Tímaslátrun
Myndir
01.12.2006 00:32:54 / alonso

Flutningar...

Jæja þá er komið að því. Kallinn ætlar að flytja! Jamm, allir þeir sem nenna að lyfta þungum hlutum hafið samband. Auðvitað nennir enginn að lyfta þungum hlutum, nema Nösi...Nösi bjallaðu!! En allur almennur stuðningur er vel þeginn.

En allavega, þið eruð öll velkomin....endilega kíkiði..annars verð ég leiður og einmanna. Ég vil ekki vera leiður og einmanna...komiði...plís!!!

Heimilisfangið er: www.123.is/himmi

Bless asnalega blogcentral.is

Þakka liðið...


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.11.2006 14:43:11 / alonso

Taka þær....

You Tube er skemmtilegt!! Mikið óskaplega er mikið til af fyndnum myndböndum þar. Það kemur sér einkar illa að hafa svona afþreyingu þegar maður á að vera að gera eitthvað gáfulegt, eins og td að læra. Það er búin að vera helvítis pressa á kallinum undanfarið, full mörg verkefna skil á full stuttum tíma...jájá byrja fyrr á þessum verkefnum og létta þannig á álaginu!! Ég gerði það ekki núna frekar en fyrri daginn og því er þetta svona. Enda nennir maður ekki að byrja á einhverju verkefni eða ritgerð þegar maður á ekki að skila því fyrr en eftir viku eða eitthvað. Allavega, You Tube. Er búinn að eyða óhemju miklu magni af tíma inn á þeirri síðu. Já og kvikmynd.is líka. Legg til að þið takið ykkur góða pásu frá því sem þið eruð að gera og kíkið þarna inn. Ætla að láta ykkur fá hérna tvo linka sem ættu að koma ykkur af stað. Pálmar var að senda mér þá og ég er í alvöru að drepast úr hlátri akkúrat núna. Kíkið á þetta:

 

 



http://www.youtube.com/watch?v=aShWUJ_i734

 

 



kvikmynd.is og skrifa í leit: Þaggað niður

 

 



Annars er allt bara við það sama. Fór reyndar í stórbrotið matarboð í gær hjá Baldri Ragnars, þar fór Matti kokkur hamförum. Í forrétt var kengúra, marineruð í einhverju sem ég veit ekki hvað heitir og lime. Svo bakaði hann einar 18 pizzur og setti ofan á þær allan andskotann..bragðaðist alveg splendit. Svo í eftirrétt var einhver súkkulaðihnullungur og inní honum miðjum var söltuð karamella...já söltuð! Og hún var ekki bara söltuð með venjulegu borðsalti heldur með “flur de sel” sem er salt sem er selt í stykkjatali. Alltsvo þú borgar per korn. Enda ekkert skrítið þar sem flokkur vel tamina albinóa tínir þetta samviskusamlega af saltrjánum á leyni eyju nálægt Fjarskakistan. Að sjálfsögðu átu allir yfir sig.

 

 



Ég og Sneiðin ætlum á Bond í kvöld. Já við ætlum á´ann. Hlakka mikið til.

 

 



Svo er hún elsku mamma að koma á miðvikudaginn. Það er brilljant..því þá get ég aðeins minnkað álagið hérna í eldhúsinu hjá mér. Enda nauðsynlegt. Það sauð nefnilega upp úr hjá mér um daginn þegar ég var að malla blómkálssúpu og það er slatti eftir af henni umhverfis minni helluna. Og alltaf þegar ég fíra þessu í gang kemur frekar spes lykt, frekar vond en góð. Hvernig þrífur maður þetta af? Ég er búinn að prófa handklæði, sokka, viskastykki, skeini og skeið!

 

 



Kíkkti aðeins á íslandsmótið í innanhúsfótbolta á laugardaginn. Ástæðan var sú að þar voru að etja kappi þeir Hermann Larsen og Pálmi S-mælti. Skemmst er frá því að segja að þeir urðu mér, sjálfum sér og Húsvíkingum öllum til háborinnar skammar. Samt aðallega Pálmi. Hann sýndi óíþróttalega hegðun af verstu gerð. Beitti fautaskap og var með almenn leiðindi allan tímann. Greinilegt að þessi annars dagfarsprúði maður fór vitlausu megin fram úr rúminu þennan morguninn. Reyndar vitum við sem þekkjum hann hvað best að það blundar skepna innan í honum. Það kom bersýnilega í ljós úti í Álaborg fyrir nokkrum árum þegar hann lét litla, þeldökka, þroskahefta stelpu heyra það í biðröð í skemmtigarði. Vissum við félagarnir ekki hvaðan á okkur stóð veðrið þegar hann hraunaði yfir hana á okkar ylhýra. Greyið stelpan.


» 9 hafa sagt sína skoðun

21.11.2006 21:28:09 / alonso

Aji...

Djöfullsins, sirkus tv er að kúka upp á bak núna. Ég er búinn að bíða spenntur eftir uppáhalds þættinum mínum, Rescue me, en þeir ætla bara að sleppa honum í kvöld. Í staðinn eru þeir með beina útsendingu frá einhverri hálfvita samkomu sem ber nafnið Skrekkur, sem er btw viðbjóður. Það er miklu skemmtilegra að horfa á Denis Leary heldur en þetta drasl. Núna þarf ég að bíða í vku í viðbót. Það er leiðinlegt að bíða.

 

 



Fór á alveg hreint ofboðslega(berist fram eins og gaurinn í Dalalíf sem var að skoða kjúklinginn) tónleika á sunkvöldið. Þar komu fram Ljótu hálfvitarnir og Ripp, rapp og Garfunkel. Óhætt er að segja að þeir fjölmörgu sem lögðu leið sína á Rósenberg þetta kvöld hafi ekki orðið fyrir vonbrigðum. Textarnir hjá þessum böndum er rannsóknarefni...sjitt hvað ég hló mikið.

 

 



Það er kominn smá snjór hér í borgina, það hefur reyndar sennilega ekki farið fram hjá neinum því þetta er búið að vera aðalfrétt í fréttatímun undanfarna daga. Sportbíllinn minn er ekki alveg sáttur við þetta hret. Hefndi sín á mér fyrir að steja hann í gang í þessum kulda með að skutla mér yfir hringtorg. En við sættumst eftir það og allt gengur eins og í sögu í dag.

 

 



Núna er ekkert skemmtilegur tími í þessum blessaða skóla. Þarf að skila fullt af einhverjum leiðinda ritgerðum og verkefnum. Ég væri að ljúga ef ég segði að ég væri að fíla þetta. En þetta endar vonandi með ósköpum og allir verða sáttir.

 

 



Nú er þessi Skrekkur á Sirkus að ganga frá mér úr leiðindum þannig að ég er að hugsa um að hætta að skrifa og henda sjónvarpinu fram af svölunum.

 

 



bæjó


» 7 hafa sagt sína skoðun

15.11.2006 23:09:15 / alonso

Hahahahaha...

Stundum þarf ósköp lítið til að gleðja hann Himma litla!

Rakst á þetta á b2 og er búinn að vera fastur í þessu í góða 2 tíma og hlægja frá mér allt vit.

Mér finnst þetta bara ekkert eðlilega fyndið!!! Langar til að hitta manninn sem datt þetta í hug og knúskyssa hann.

Prófið þetta og látið mig vita hér að neðan hvað ykkur finnst...getur ekki verið að ég sé sá eini sem finnst þetta ógeðslega fyndið!!!

ATH...þið verðið að hækka vel í tölvunni ykkar áður en þið prófið þetta. Þetta er nefnilega ekkert fyndið ef þið eruð með tölvuna á silent;)

http://b2.is/?sida=tengill&id=198149


» 10 hafa sagt sína skoðun

28.10.2006 19:01:19 / alonso

Havarti...

Jói Havarti er hérna hjá mér. Var að elda fyrir kallinn. Fór líka með hann í sund. Við ákváðum í sturtunni að synda nokkrar ferðir og fara svo í pottinn. Skelltum okkur, helmassaðir, í laugina og fórum nokkrar ferðir og dóum næstum því. Djöfull er erfitt að synda!!! Sjitt...við höfðum held ég 4 ferðir. Fórum svo í tilgangslausustu rennibraut í heimi. Kannski var þetta svona leiðinlegt útaf því að við náðum ekki að troða stuttbuxunum uppí rassgatið á okkur. Allavega, Jói sagði mér áðan að hann vonaðist til þess að manure myndi falla á næstu leiktíð því þá ætlaði hann að flytja heim til Alla Jesú og bjóða Degi í heimsókn til að geta gert grín af þeim allan daginn. Þetta þykir mér ákaflega fyndið. Vona líka að þetta rærist. Annars erum við að hella aðeins uppá okkur. Ætlum svo að skombera í ammli hjá Arnari Sneið. Herlegheitin verða haldin á Barnum. Það verður gaman. Í gær fór ég með Grana og Eygló í opnunar partý á einhverju hönnunarverkstæði eða eitthvað hjá Rósu og Snæbirni. Það var frekar gaman en mjög súrt. Listafólk er stundum dálítið skrítið finnst mér. En það er gott í þessu. Við Grani fengum okkur aðeins. Eða eiginlega bara slatta. Við höfðum gott af því og áttum það skilið. Er búinn að verað spá í að í dulítinn tíma að reynað ná einhverju af þessu hvíta af mér. Er m.a. byrjaður í ræktinni. En þetta er svo leiðinlegt. Nenni td. ekki að borða eitthvað sem er vont á bragðið bara útaf því að það er hollt. Það er miklu bærilegra að vera bara svona eins og ég er. Enda er ég agalega hnýttur og ógeðslega sexý.

 

 



Jói vildi ekki kúka með opna hurðina áðan. Það finnst mér barnalegt. Það er regla hérna að ef menn ætlað fá að tefla við páfann hjá mér þá verður hurðin að vera opin.

 

 



Djöfull hlakkar mig til að fara norður á fimmtudaginn í rjúpur. Er að setja saman matseðil til að láta mömmu fara eftir. Langar agalega að fá kjöt og karrý á fim kvöldið. Svo væri fínt að fá elg á fös. Er ekki búinn að ákveða með lau.

 

 



Fór með sportbílinn minn í smá viðgerð á fös. Það þurfti að laga eitthvað pústið held ég, var eitthvað skrítið hljóð í honum. En eftir viðgerðina er komið eitthvað hröngl hljóð í hann. Sennilega heddið eða pannan. Þarf að fara með hann aftur á mán. Vesen. Vesen er leiðinlegt. Vesen er líka ljótt orð.

 

 



Jæja nenni ekki meir...

 

 



bless


» 16 hafa sagt sína skoðun

24.10.2006 18:18:08 / alonso

Ósk um húsráð...

Ein spurning til húsmæðra og annara sem þykjast eða hafa eitthvað vit á þessu: Þarf maður að þvo ostaskera? Ég nota ostaksera ekki í neitt annað en til að skera ost. Efast reyndar um að ég sé sá eini sem brúka þetta annars ágæta eldhúsáhald eingöngu til að sneiða ost. En af hverju ætti maður þá að þurfa að þvo hann? Þegar ég var heima þá var fátt meira óþolandi en þega ostaskerinn var í uppþvottavélinn þegar maður þurfti að nota hann. Ég held allavega að það þurfi ekki að þvo hann, og þangað til annað kemur í ljós verður hann ekki þveginn.

En í annað. Skil ekki hvað fólk fær út úr því að horfa á milljónamæringa í útlöndum keppa í fótbolta. Held að þetta sé bara eitthvað sem eldist af manni. Fer eftir einstaklingum hvursu lengi þeir nenna að hanga yfir þessu. Ég er allavega eiginlega vaxinn upp úr þessari tímaeyðslu. Nú ætla ég að nota tímann sem maður eyddi fyrir framan skjáinn í hverri viku í eitthvað uppbyggilegt. Eins og að fara í göngutúra, skoða söfn, lesa, þrífa mig, spjalla við fólk um eitthvað sem skiptir máli og finna mér gæludýr til að ala upp og éta svo.

Var að skoða myndir frá Húsavík og þar er bara allt orðið hvítt. Það er pirrandi. Mér leiðist snjór. Hann hefur akkúrat engan tilgang. Allavega ekki fyrir mig. Ég fer ekki á skíði, á ekki stiga-sleða og finnst leiðinlegt að búa til snjóhús. Snjór er eiginlega bara fyrir mér. Maður verður blautur og kaldur á löppunum þegar maður labbar í honum. Svo er miklu leiðinlegra að keyra í snjó heldur en í engum snjó. Fyrir það fyrst þá þarf maður að skafa frosinn snjó af rúðunni svo maður sjái eitthvað út og svo festist bíllinn stundum í snjónum. Allt þetta er pirrandi, leiðinlegt og tilgangslaust.

Tókum eitt semi-hópkúk hérna í hádeginu. Þeir komu litlu þurfalingarnir Pálmi og Pálmar og ég gaf þessu rössum grillsamlokur og svo tókum við Pálmar dobbl á postulínið, Pálmi var svo upptekinn í kláminu að hann vildi ekki kúka með okkur.

Við ræddum eitt sem er alveg hrikalega fyndið. Við höfum í gegnum tíðina verið svolítið í því að ljúga upp á hvorn annan. Sem er mjög góð skemmtun ef vel heppnast. Það sem er samt fyndnast í þessu er að allt sem við segjum um hvorn annan fer alveg þráðbeina leið á kennarastofuna í gamla barnaskólanum okkar heima. Og það sem best er, þetta fer þangað nánast undantekningarlaust samdægurs. Þar náttúrulega vinna hænurnar Solla og Bogga ásamt fullt af öðru öndvegisfólki. En þar sem lygin okkar var stundum á frekar gráu svæði ákváðum við að hætta þessu. Þannig að allt sem við segjum um hvern annan eftir þetta er ekkert annað en heilagur sannleikur.

 

Bið að heilsa ykkur í bili...

 

 

 



 



 


» 19 hafa sagt sína skoðun

13.10.2006 00:47:53 / alonso

Hrotur...

Hrotur eru skemmtilegt fyrirbæri. Mér þótti alltaf gaman þegar ég var í sveitinn hjá afa í denn að heyra kallinn hrjóta. Mér fannst það töff. Mér fannst það kallalegt. Mér fannst það Afa-legt. Ég tók þá ákvörðun að ég ætlaði að hrjóta jafn hátt og afi á Rangá. Ég ætlaði líka að safna eins stórri bumbu og afi á Rangá. Ég er kominn vel á veg með bumbuna en ég náttúrulega veit ekki alveg hvernig þetta gengur með hroturnar. Aðalástæðan fyrir því er sú að ég er alltaf sofandi þegar ég hrýt. Held samt að ég hrjóti ekki neitt. Ef svo er þá verð ég að farað taka mig á. Reyndar var samferðarfólk mitt á Roskilde núna í sumar eitthvað að kvarta undan hrotunum í mér. Held samt að það hafi verið byggt á misskilningi. Einhver sagði mér einhvertímann að hrotur kæmu þegar maður andar inn bæði með munninum og nefinu..sko í einu. Ég held að það sé bara vitleysa. Menn hrjóta bara ef þeir vilja hrjóta. Annað hvort til að vera töff eða til að vera pirrandi. Ég held að það séu til tvennslags hrotur. Annarsvegar töff/notalegar hrotur, einsog hroturnar hans afa, og hinnsvagar pirrandi/ekki neitt notalegar hrotur einsog pabbi er að hrjóta núna. Pabbi er í þessum skrifuðu orðum sofandi hérna á gólfinu við hliðina á mér og hann er við það að slá heimsmet í að hrjóta hátt. Veggirnir nötra hérna. Kannski það myndi lækka eitthvað í honum ef ég setti sófann ofan á hann? Nei nenni ekki að lyfta sófanum og svo á maður ekki að setja sófa ofan á pabba sinn þegar hann er sofandi. Kasta honum bara fast í hann í fyrramálið. Er að horfa á america´s next top model...þetta eru ógeðslega skemmtilegir þættir. Bestu þættir sem sýndir hafa verið á skjá einum frá upphafi!!! Sérstaklega finnst mér svarti “kallinn” í kjólnum skemmtilegur. Alltaf svo hress eitthvað og settlegur.

 

 



Og þarna sló hann heimsmetið...til lukku Fjósi.

 

 



 

 




» 11 hafa sagt sína skoðun

29.09.2006 13:23:52 / alonso

Hóp-kúk og annað...

Það er góð skemmtun að kúka saman. Ég er ekki að segja þetta til að reyna að hneyksla fólk. Þetta er einfaldlega staðreynd. Þegar góðir vinir kúka saman þá færist ró yfir mannskapinn og tilfinningar fá að fljóta frjálsar í allar áttir. Núna rétt áðan kom Pálmi hingað heim til að kúka. Hann kom sér vel fyrir á postulíninu og ég kom mér vel fyrir í rúminu mínu, sem er í góðu sjónfæri frá postulíninu og öfugt. Svo kúkaði strákurinn og við spjölluðum á meðan. Þegar hann var búinn skiptum við um stað. Það er reyndar mun verra að vera nr 2 í röðinni á postulínið. Þetta þykir mér mun betra heldur en að setjast niður með vini sínum inn á kaffihúsi. Þetta er miklu meira afslappandi. Um daginn komu þeir Pálmi og Pálmar hingað til að kúka. Sama rútínan var viðhöfð þá og allir skemmtu sér mjög vel.

Setti í tvær vélar áðan, það gekk að sjálfsögðu einsog í sögu. Alveg þangað til þær voru búnar og ég ætlaði að farað hengja þvottinn upp. Þá kom mörðurinn hann Pálmi og vildi endilega setja þetta allt í þurrkarann. Ég treysti ekki þurrkurum. Hann tróð öllu draslinu inn og setti svo bara allt á fullt. Ég veit ekkert hvenær þurrkarinn verður búinn en er alveg handviss að fötin verða öll ónýt.

Er að fara til Baldurs Ragnars að skoða ófreskjuna sem hann var að kaupa sér. Helst er álitið að þetta sé mannætuhundur. Eftir það er svo vísindaferð í persónuvernd. Helst er álitið að menn komi ekki alveg edrú þaðan. Havartaskorpan er á leiðinni í bæinn. Helst er álitið að hann sjái illa.

Svo er stórdagur á morgun. Byrjar með stórleik bolton og Liverpool. Ég, Heiddi Gutta og Arnar ætlum að taka hann á Players, svo förum við Pálmi í höllina til að hvetja son Sollu til dáða á móti Akureyri. Eftir það er svo ammælis/kveðjupartý hjá Huld og Hörpu. Þéttskipað laugardagskvikindi þar á ferð.

Langar agalega að fara norður með Pálma á mið í næstu viku. Í boði er ferð í svartfugl frá Hrísey og gæsa dráp í Þingeyjarsýslu. Reikna með að tekin verði gífurleg skyndiákvörðun seint á þirðjudagskvöld.

Jæja best að fara að athuga hvort þurrkaraómyndin sé ekki alveg örugglega búin að gera öll fötin mín ónothæf.


» 21 hafa sagt sína skoðun

08.09.2006 01:10:53 / alonso

Mamma mín...

Frú Friðrika kom í örstutta heimsókn í dag. Kom með gotterí úr fríöfn Hr. Leifs Eiríkssonar. Lét svo silfurkálfinn aka sér í ikea. Þar verslaði frúin í villuna, vildi gera hana aðeins hlýlegri. Hún er orðin mjög hlý núna. Er samt ekki alveg að fatta allt þetta dót sem frúin keypti. Man ekki alveg hvar ég átti að setja það og man ekki alveg hvaða tilgangi það átti að þjóna. Það eru reyndar öngvar gluggaskýlur komnar upp ennþá en þær eru að fara í vinnslu. Vinnslan fer fram í Laugarbrekku 24. Frú Friðrika ætlar að snitta þær aðeins og kambsjæna áður en hún póstleggur þær hingað suðureftir. Þegar þessar kanónur verða komnar upp er ég fær í flestan sjó. Stærsta spurningarmerkið eftir þessa gastrónómísku ikea för er hálf fölleitur miðlærishár vasi sem stendur eins og mjög illa farin símaklefi hérna í suð-austur horni villu minnar. Man ekki alveg hvað ég átti að setja oní hann eða hvort ég átti að setja eitthvað oní hann. Reyndar passa klósettrúllurnar furðuvel oní ferlíkið. En það er svo vont að ná þeim uppúr aftur þannig að það getur bara ekki átt að hafa verið tilgangur þessa afkvæmis Ingu Stellemans(sá á veggspjaldi í ikea að hún væri hönnuður þessara vasa). En ég finn vonandi eitthvað útúr þvi!

 

 



Ég, sneiðin og frú skruppum á uppistand í kvöld. Mikið óskaplega var það nú fyndið. Davíð Þór fór hamförum. Aðalumræðuefni hans var dýragetnaður.

 

 



bless


» 22 hafa sagt sína skoðun

05.09.2006 10:15:27 / alonso

Hvar er Geiffi...

Jæja þá. Það er nú ansi margt skemmtilegt búið að gerast síðan ég ritlaði hérna inn seinast. En ég ætla ekkert að segja ykkur frá því. Er kominn í sollinn og líkar það bara alveg hreint ágætlega so far. Hundleiðinlegt reyndar að hitta alla þessa “vini” mína hérna, en ég er að hugsa um að gefa þeim nokkra sénsa í viðbót. Þetta eru allt hin vænstu skinn, bara frekar leiðinlegir! Helgin var keppnis. Martin félagi minn og samstarfsmaður var fyrsti gesturinn í villunni minni. Hann gisti hérna á fim nóttina á flamberaðri lúft dýnu sem Prinsinn lánaði okkur. Martin tók það að sér að versla í kvöldmatinn á fös kvöldið....þvílíkt og slíkt. Hann keypti bjúgu, rúgbrauð með kornum, hrásalat, vont kex, sítrónusafa og eitthvað fleira sem var alls ekki gott. Reyndar eru engin verkfæri hérna í slotinu til að elda ennþá...en það reddast þegar Frú Friðrika kemur hingað í lok vikunnar. Það var mæting á Skúlagötuna bæði fös og lau kvöld. Brotaviljinn bar mig, Prinsinn og Mölla næstum því á Players á föskv...skortur að leigubíl og gríðalega löngun í kaldan mjöð kom í veg fyrir það. Skólinn er að rúlla af stað í rólegheitunum. Er ekki alveg kominn í gírinn ennþá, er sumsé ekki að nenna þessu en það kemur vonandi mjög fljótlega. Er að naga af mér hægri handlegginn núna, þarf nefnilega að afhenda hann í bókasjoppunni á eftir í skiptum fyrir örfáar skruddur. Það er bara sanngjarnt. Gærdagurinn fer í sögubækurnar. Við Baldur Ragnars afrekuðum að gera nánast ekki neitt allan daginn. Samt mjög góður dagur. Hann hringdi í mig kl akkúrat rúmlega ellefu og bauð mér í pylsur í alltofstóra húsið sitt. Kallinn mætti svo og pikkaði mig upp örfáum mínótum síðar á pínulitla bílnum sínum. Við fórum í Bónus og hömstruðum pylsur og meððí. Heim til hans, þar sem pylsurnar fengu að flatmaga í filippó á pönnu í nokkrar sek, á hvorri hlið. Eftir óhóflegt magn af minibjúgum horfðum við á stórfenglega mynd sem ég manekki hvað heitir. Þetta var svona kungfukalliíknattspyrnumynd. Gríðar góð og ofboðslega fyndin. Eftir hana höfum við ekkert að gera. Þá datt okkur í hug að fara og leita að Geirfinni. Nenntum samt ekki út, það var svo mikil rigning, þannig að við fórum bara á leit.is og tékkuðum þar. Eftir talsveraða og frekar metnaðarfulla leit gáfumst við upp og erum núna alveg sannfærðir um að hann komi sennilega ekkert í leitirnar, blessaður. Þá fórum við niðrá Rósenberg, drukkum alltof mikið af kaffi og spiluðum Kotru í eina 4 tíma. Baldur vann miklu oftar. Heppinn andskoti hann. Eftir þessa niðurlægingu og á leiðinni útí bíl hitti ég afar vandaðann mann. Hann kynnti sig ekki, en hann kom þétt upp að mér og spurði hvort við ættum ekki að standa saman í baráttunni. Ég hélt það nú. Þá spurði hann hvar við ættum að byrja. Þá hló ég svo mikið að ég varð bara að kveðja þennan sauðdrukkna útigangsmann. Jæja eddskurnar mínar, handleggurinn er því sem næst orðinn laus frá öxlinni þannig að ég verð að setja hann í poka og koma mér í bókasjoppuna.

 

 



Djöfull heldur hann sér kallinn.....


» 6 hafa sagt sína skoðun

23.08.2006 18:17:32 / alonso

Rassi og Sósa...

Allt í einu helltist yfir mig þessi líka sjúklega löngun til að skrifa eitthvað ómerkilegt inn á þessa manndrepandi leiðinda síðu. Ég fór í hvalaskoðun um daginn. Ég sá hval. Hann hoppaði uppúr sjónum ca 250 sinnum. Allir um borð öskruðu og sleptu fram af sér beislinu í hrifningu. Ekki ég samt. Ég grét. Já Jói og Haví, ég grét!!! Ég var nefnilega svo sunnan við mig þegar ég fór í vinnuna um morguninn að ég gleymdi helvítis myndavélinni minni heima. Tók þar af leiðandi öngvar myndir. Óþolandi. Heissi Harðar tók myndir og ein af hans myndum prýddi forsíðu Moggans um daginn.

 

 



Nú er komin dagsetning á helförina. Ég og Sneiðin ætlum að bruna suður, á sportbílnum mínum, næstkomandi þriðjudag. Ég er boðinn í mat fyrstu átta vikurnar hjá Pálma. Geri ráð fyrir að það verði Lasagna í 90% tilvika.

 

 



Síðasti vinnudagur sumarsins á morgun. Í tilefni þess var ákveðið að hafa árshátíð hjá fyrirtækinu annaðkvöld. Þau ákváðu þetta um leið og ég sagði þeim að ég væri að hætta. Held að þau séu svona djöfull fegin að losna við mig. Ég er nefnilega alveg ógeðslega leiðinlegur.

 

 



Helgin verður bærileiki. Sófíu fundur á laugardag. Fyrir þá sem ekki vita hvað Sófí er þá er þessi kúltiveraði hittingur haldinn síðasta laugardag þriðja hvers mánaðar. Saman koma nokkrir vörpulegir menn og ýmis málefni rædd. Endar þetta svo yfirleitt með trúarathöfn þar sem folaldi er slátrað.

 

 



Verð að hætta, Hilla frænka er að koma í heimsókn

» 13 hafa sagt sína skoðun

18.08.2006 20:57:13 / alonso

Maja meik...

Stundum langar mann svo ógeðslega að gera eitthvað annað en maður þarf að gera! Mér finnst ég lenda alltof oft í þessum aðstæðum. Samt veit ég um fullt af fólki sem er búið að upplifa þetta miklu oftar en ég. Kannski er þetta bara væl, ég held samt ekki. Alltaf þegar maður kvartar yfir þessu þá kemur einhver andskotans hálfviti og segir: “hættu þessu væli drengur.” En stundum er þetta bara svo yfirgengilegt. Stundum er maður jafnvel að hugsa um að gefa bara skít í allt og gera nákvæmlega það sem mann langar, akkúrat þegar mann langar það. En ef maður gerir það þá verða einhverjir sárir og leiðir og fullt af veseni bankar á dyrnar hjá manni daginn eftir. Ég nenni því ekki. Satt best að segja nenni ég engu núna. Nenni ekki að standa uppúr þessum stól. Nenni ekki að pissa. Nenni ekki að tala við fólk sem mér líkar vel við. Nenni ekki að hitta neinn. Nenni ekki að fá mér eitthvað að drekka. Nenni ekki að fara að sofa. Nenni alls ekki að vakna í fyrramálið. Nenni ekki að pakka dótinu mínu og flytja suður. Nenni ekki í skóla. Nenni ekki að reka fluguna burt sem er komin langleiðina inní vinstra eyrað á mér. Nenni ekki að þrífa mig(hef reyndar ekki nennt því í rúmlega þrjár vikur.) Nenni ekki að raka mig. Nenni ekki að skrifa lengur…

 

 



…en ég nenni hinsvegar að skíta og það ætla ég að gera akkúrat núna…

 

 



ATH. Ef einhver fjölskyldumeðlimur eða nákomin vinur les þetta þá er ég ekkert þunglyndur eða illa haldinn. Mér bara hreinlega datt ekkert annað í hug…já og svo er ég pínu mildur!!

 

 



Lifið í lukku en ekki krukku….eða jú, búið um ykkur í krukku og látið svo einhvern hrista hana á fullu!!

 

 



Mamma ykkar…


» 10 hafa sagt sína skoðun

17.08.2006 18:06:56 / alonso

hejsan...

Síðasta helgi, ó, síðasta helgi. Hún var svo gastrónómísk. Ég, Yngvi, röllz, Haví, Sonur hafsins og Ingvar í bókabúðinni héldum skemmtilegasta garden-party í evrópu heima hjá Villa í bankanum og Láru gítarkennara. Byrjuðum þetta stundvíslega kl rúmlega hálf fimm. Smökkuðum ítalskt rauðvíni sem einhver hæna gaf mér eftir að ég laug hana fulla í einhverri hvalskoðunarferð um daginn. Það bragðaðist svei mér vel, þó það hafi verið gruggugt og pínu gult. Svo skelltu garparnir sér í heitasta heita pott í heiminum. Sátum þar rúmlega drykklanga stund og leystu alheimsvandann. Grilluðum svo handborgara og geispuðum þá fallega oní okkur. Fljótlega uppúr því fór að rigna og var þá garden-partýið fært inn í stofu. Þar hófst keppnin. Keppnin fólst í drykkju. Við unnum allir. Allir fengu verðlaun. Verðlaunin voru í fljótandi formi. Dönsuðum svoltið og sungum og hringluðum okkur svo niðrá Bauk. Þar var ekki þétt setið. Fundum sæti og blönduðum geði við almúgann. Eftir Bauk, fannst mér, Agga, rölla og Haví tilvalið að halda gleðinni áfram, buðum með okkur slatta af fólki og fórum heim til Rikku Bald. Veislugestir sáu fljótt að Rikka Bald hafði ekki verið heim í dálítinn tíma. Ísskápurinn tómur og skrýtnustu hlutir á undarlegustu stöðum. Einhverjir fengu þá brilljant hugmynd að baka. Ég hinsvegar gekk um og helti skota í glös handa frekar þreyttum partýgestum. Það vildu hinsvegar mjög fáir smakka á þessu þannig að ég drakk þetta mest allt sjálfur og sofnaði mjög fljótlega uppúr því. Gott og gastrónómískt kvöld.

 

 



Nú fer að styttast í búferlaflutninga hjá honum mér. Ekki er alveg komin fastnegld dagsetning á brottför mína, en hún verður annaðhvort í þessum mánuði eða hinum. Er búinn að fá úthlutaða gríðarstóra íbúð sem fyllir 29 fermetra. Ekki bagalegt það. Er ekki búinn að gera upp við mig hvort ég noti vestur- eða austur álmuna sem tómstundarrými. Sennilega hvoruga. Það verður afskaplega vandaður hópur af valmönnum samankominn í henni Reykjavík í vetur. Þannig að þegar ég flosna uppúr námi þá verður auðvelt að finna sökudólg. Það verðið þið mínir kæru vinir.

 

 



Farið illa með þá sem eiga það skilið…


» 6 hafa sagt sína skoðun

10.07.2006 00:25:22 / alonso

Ef ég ætti egg, þá myndi ég fá mér egg og beikon, ef ég ætti beikon....

Það var bara ekkert að því að vera á Roskilde. Drakk mikið, mikið af Tuborg. Borðaði fullt af vondum mat. Sá helling af allsberu fólki. Horfði á óþarflega mikið af stelpum pissa á girðingu. Kúkaði á kamar. Sá slatta af skemmtilegum tónleikum. Bærilegur andskotans bærileiki.

 

 



Er búinn að spá mikið í það undanfarið hvað það hlýtur að vera leiðinlegt að vera dýr. T.d. vinn ég við að skoða hvali. Djöfull hlýtur þeim að leiðast. Þetta er allt eins. Þeir borða…þurfa að koma uppúr sjónum til að anda og fara svo niður og borða meira. Oj, hvað þetta hlýtur að vera leiðinlegt. Svo held ég að það sé hundleiðinlegt að hafa engar hendur.

 

 



Mig dreymdi nýlega að ég þyrfti agalega mikið að tala við einhvern mann sem hét Óðinn Einar. Man ekkert hvað það var sem ég þurfti að ræða við hann. Ég allavega reyndi að hringja í hann á fullu en það svaraði aldrei. Þannig að ég ákvað að taka bara hús á kalli. Til dyra kemur ljót kona. Ég spyr um Óðinn Einar og þá segir hún mér að hann sé sofandi, hafi verið á næturvakt í brandarasmiðjunni. Óðinn Einar var nefnilega brandarasmiður. Fljótlega uppúr þessu vaknaði ég skellihlægjandi. Hversu fyndið væri það ef maður þekkti einhvern brandarasmið og hann ynni á næturvöktum við að búa til brandara!! Kannski finnst engum þetta fyndið…en mér er bara alveg sama.

 

 



Djöfull heldur hann sér kjellinn…


» 11 hafa sagt sína skoðun

06.06.2006 19:35:03 / alonso

Þetta er svo magnað...

Þá er ég kominn heim úr menningarferðinni miklu til skítapleisins Benidorm. Er að ná upp eðlilegum hægðum eftir ósköpin, þær voru yfirleitt frekar mjúkar þarna úti en eru allar að þykkna og hressast. Þetta var alveg ævintýralega gaman. Náði að forða mér fimlega undan sólinni mest allan tímann, þótti mun gáfulegra að sitja undir góðu skyggni og stinga úr einum köldum heldur en að láta sólina níðast á líkama mínum. Sól, í miklu magni, og ég erum ekki perluvinir. Svo heppilega vildi til að fyrri vikuna sem við vorum þarna úti var Celtic ráðstefna í gangi. 45 þúsund Celtic aðdáendur voru á staðnum og þeir fóru ekki fram hjá neinum. Konur, börn og menn voru full frá morgni til kvölds, kyrjandi Celtic lög. Það var bara gaman. Gistum á hóteli sem hét Las Vegas og þar voru öll elliheimili spánar samankomin. Meðal aldurinn, áður en við mættum, voru rétt rúm áttatíu ár. Á nánast hverju kvöldi voru haldin gömludansaböll niðri á bar og þar var bara ekkert að því að kíkja þarna niður og lifa sig inn í stemminguna. Reyndar fékk maður illt augnaráð frá öllum þarna inni en það er bara útaf því að gamlir spánverjar eru fordómafullir og heimskir. Maturinn á hótelinu var ansi nálægt því að drepa okkur. Aldrei á ævinni hef ég borðað eins ógeðslegan mat. Þó hef ég látið Pálma elda ofan í mig. Það var ekki fyrr en eftir 4 daga að við föttuðum ástæðuna. Við vorum að borða mannakjöt. Já þið trúið því kannski ekki en þarna voru gamlir dánir spánverjar borðnir á borð fyrir aðra gamla, næstum því dána, spánverja….já og okkur. Held að þetta sé aðalástæðan fyrir renneríinu úr rassinum á mér, alltsvo að mannakjöt fari bara hreinlega illa í mig. En það er bara ég.

 

 



HM er að byrja á fös og ég er í fríi þá…sjibbý. Er reyndar að vinna á lau og sun en vidjóið verður bara stanslaust á rec og ég horfi á næturnar. Maður þarf nefnilega ekkert að sofa þegar HM er. Held gríðarlega með Englendingum. Er samt skíthræddur um að þeir eigi eftir að floppa, umtalið og væntingarnar á Bretlandi eru gríðarlegar. Þeir verða sennilega allir myrtir ef þeir fara ekki alla leið, eða amk í undanúrslit. Carragher er að sjálfsögðu lykilmaður í þessu liði. Án hans eru þeir ekki neitt. Það hefur sýnt sig í undanförnum leikjum!!

 

 



Datt í hug staka…en er búinn að gleyma henni.

 

 



Lifi byltingin…


» 26 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8